Í þessum mánuði, þegar UN Women fagnar fyrsta starfsafmæli sínu hafa 114 ríkisstjórnir lagt framlög í kjarnastarfsemi samtakanna fyrir árið 2011og þar með eru orðnar 73% hærri en samanlögð fjárráð allra fjögurra fyrirrennara stofnunarinnar á árinu áður. Markmið stofnunarinnar er að tekjur á árunum2012 – 13 verði 700 milljónir bandaríkjadala.
Nánar...
Fyrir ári var UN Women að slíta barnskónum en nú erum við komin á fulla ferð. Við höfum afrekað mikið á stuttum tíma og ég er stolt af okkur. Það sem einkenndi alþjóðamál árið 2011 var tvennt, annars vegar arabíska vorið og svo efnahagskreppan. Konur hafa verið þátttakendur og fórnarlömb í hvoru tveggja.
Sex málefni hafa verið sett í forgang fyrir árið 2012. Hið fyrsta er að auka pólitíska þátttöku...
Nánar...
Ert þú á leiðinni í afmæli, útskriftarveislu eða aðra skemmtilega veislu og ert að leita að hinni fullkomnu gjöf? Með því að gefa þeim sem þér þykir vænt um gjöf frá UN Women, gleður þú ekki einungis viðtakanda heldur einnig þúsundir kvenna víða um heim sem búa við bág kjör og óviðunandi aðstæður.
Nánar...
Bachelet hvetur til að fylkt verði liði um allan heim til að standa vörð um réttindi kvenna á viðsjárverðum tímum pólitískra og efnahagslegra umbreytinga í heiminum.
Nánar...
Í dag eru tæplega 2400 manns sem styrkja starf UN Women mánaðarlega. Systralag UN Women á Íslandi er helsta fjáröflunarleið samtakanna hér á landi. Styrktaraðilar Systralagsins eru á öllum aldri og úr hinum ýmsum áttum. Í ár viljum við kynnast styrktaraðilum okkar nánar og um leið skapa umræðu um jafnrétti kynjanna.
Nánar...
Systralag UN Women var ýtt úr vör fyrir tæpum þremur árum. Starfsemi UN Women byggir að mestu á frjálsum framlögum og því er Systralagið helsta fjáröflunarleið samtakanna hér á landi. Í dag eru rúmlega 2400 manns sem styrkja starf UN Women mánaðarlega.
Laugavegi 42, 2. hæð
101 Reykjavík
Sími: 552 6200
Fax: 552 6010
unwomen-at-unwomen.is