UN Women-umræður: Skírlífi til varnar HIV útbreiðslu

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

smokkur Á miðjum tíunda áratugnum samþykktu bandarísk stjórnvöld endurbætur á kynlífsfræðslu til ungmenna þar sem ríkari áhersla var lögð á skírlífi ungmenna.

Undir stjórn George W. Bush varð þessi áhersla í kynlífsfræðslu einnig ráðandi í utanríkisstefnu og þróunarhjálp Bandaríkjanna. Einn þriðji af öllu féi sem eyrnamerkt var til að hindra útbreiðslu HIVí þróunarlöndum rann í verkefni sem lögðu eingöngu áherslu á skírlífi.

Jyl J. Joshephson kennari við Rutgers-háskóla í Bandaríkjunum mun ræða hvaða afleiðingar utanríkisstefna Bandaríkjanna hafði á þróunarhjálp í Afríku með sérstakri áherslu á HIV / alnæmis verkefni, hörð viðbrögð alþjóðasamfélagsins og þær breytingar sem urðu á þessari stefnu undir lok Bush-stjórnarinnar og undir stjórn Obama.

Jyl J. Joshephson er stödd hér á landi sem Fulbright-kennari á vegum RIKK.

Fundurinn fer fram á Café Haíti, þriðjudaginn 26. apríl klukkan 20. Aðgangur er ókeypis.