Þróunarsamvinna ber ávöxt

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

throunnarFrjáls félagasamtök á Íslandi sem starfa að alþjóðlegri þróunarsamvinnu í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun Íslands, standa að kynningu á þróunarmálum gagnvart íslenskum almenningi vikuna 5.-7. september.

Markmiðið er að auka skilning og þekkingu á málefnum þróunarlanda og vekja Íslendinga betur til vitundar um samfélagslegar og siðferðilegar skyldur þjóðarinnar í baráttunni gegn fátækt í heiminum.

Til að vekja athygli á málaflokknum munu félagasamtökin dreifa eplum á fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri miðvikudaginn 7. september undir yfirskriftinni: Þróunarsamvinna ber ávöxt. Auk ávaxtarins fær fólk í hendur upplýsingar í stuttu máli um árangur sem unnist hefur með þróunarsamvinnu á síðustu árum.

Fimmtudaginn 8. september verður málþing um þróunarsamvinnu á Háskólatorgi í Háskóla Íslands sall 102, kl. 12:00-13:00. Fundarstjóri verður Regína Bjarnadóttir formaður stjórnar UN Women á Íslandi og fundarmenn, Jón Kalman rithöfundur, Helga Þórólfsdóttir friðarfræðingur og Engilbert Guðmundsson framkvæmdastjóri ÞSSÍ.

Frjálsu félagsamtökin sem taka þátt í verkefninu með ÞSSÍ eru Rauði kross Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Barnaheill, UNICEF, UN Women á Íslandi, Samband íslenskra kristniboðsfélaga, SOS og ABC barnahjálp.