Morgunverðarfundur UN Women 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Kæri viðtakandi,

þér er boðið á árlegan Morgunverðarfund UN Women á Grand Hótel Reykjavík, föstudaginn 25. nóvember milli  08.15 - 9.30.

Fyrr á árinu kom út skýrsla á vegum UN Women sem ber heitið Staða kvenna í heiminum: Leitin að réttlæti (e.Progress of the World‘s Women: In Pursuit of Justice).morgunverFB

Fyrir 100 árum höfðu konur aðeins kosningarétt í tveimur löndum. Nú er staðan önnur – sem betur fer. Skýrslan fagnar þeim árangri sem kvennahreyfingar um heim allan hafa barist fyrir. Hún varpar þó dimmu ljósi á þá mismunun sem enn viðgengst í garð kvenna einkum í réttarkerfinu, í gildandi lögum og í viðmóti lögreglu – sérstaklega hvað kynbundið ofbeldi varðar.

Staðreyndirnar eru sláandi. Yfir 600 milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki glæpur og í mörgum löndum eru konur fangelsaðar fyrir að hafa verið nauðgað.

Heiðursgestur fundarins er Jolin Zaghloul, lögfræðingur frá Palestínu og nemandi við Jafnréttisskóla Háskóla Íslands. Zaghloul veitir konum í fangelsi lögfræðiaðstoð í heimalandi sínu.

Morgunverðarfundurinn er opinn öllum og hvetjum við áhugasama til að mæta og kynna sér starf UN Women nánar. Aðgangseyrir er 2.800 kr. og 1.800 kr. fyrir námsmenn, morgunverðarhlaðborð er innifalið.

Dagskrá fundarins:

Regína Bjarnadóttir, formaður UN Women á Íslandi býður gesti velkomna

Hermann Örn Ingólfsson, sviðstjóri alþjóða- og öryggissviðs utanríkisráðuneytisins ávarpar fundargesti

Heiðursgestur fundarins, Jolin Zaghloul flytur erindi um starf sitt í þágu palestínskra kvenna sem sitja í fangelsi

Að erindinu loknu munu Jolin Zaghloul og Ester Sumbana, yfirmaður í Kvenna- og velferðarráðuneytis Mósambík svara spurningum gesta