Ljósaganga UN Women 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Sú hefð hefur myndast hjá UN Women að halda Ljósagöngu 25. nóvember á alþjóðlegum baráttudagi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundu ofbeldi.

Ljósagangan er einnig orðin fastur liður í 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi sem íslensk félagasamtök og kvennahreyfingar standa fyrir ár hvert. Átakið miðar að því að vekja landsmenn til umhugsunar um ofbeldi gegn konum og hefst átakið 25. nóvember og stendur til 10 desember sem er hinn alþjóðlegi mannrét_MG_9832tindadagur.

Yfirskrift göngunnar í ár var heimilisfriður – heimsfriður. Úti blés og reyndist erfitt að halda kertunum logandi þetta árið en þrátt fyrir mikinn kulda var mæting góð. Gengið var frá Þjóðmenningarhúsinu að Sólfarinu við Sæbraut.

Ljósberar göngunnar í ár voru Elín Hirst, Thelma Ásdísardóttir, Gunnar Hersveinn, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Óttar M. Norðfjörð, Berglind Guðmundsdóttir og nemar við Jafnréttisskóla Háskóla Íslands.