Ljúfir tónar og jólaglögg

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Jólaglögg UN Women á Íslandi verður haldið 18. desember næstkomandi á afmæli samtakanna, í versluninni ELLU Ingólfsstræti 5, frá klukkan 16 til 18.ELLAUN_Bodskort

Fyrsta starfsári UN Women (áður UNIFEM) er senn að ljúka og því er við hæfi að fagna frábærum árangri og viðburðarríku ári yfir ljúffengu jólaglöggi og léttum veitingum.

Tónlistarkonan Sóley syngur fyrir gesti, en hún hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda fyrir sólóplötu sína We Sink.

ELLA mun tilkynna styrk sinn til samtakanna, en fyrirtækið gefur 1.000 kr. af hverju seldu ilmvatni í Styrktarsjóð UN Women til afnáms ofbeldis gegn konum.

Við hvetjum velunnara til að mæta og eiga með okkur notalega stund.

Jólakveðja,

UN Women á Íslandi