UN Women leitaði til gjörningahópsins WEIRD GIRLS PROJECT og Kitty Von-Sometime vegna sameiningu UNIFEM við þrjár aðrar stofnannir innan Sameinuðu þjóðanna í janúar síðastliðinn.
Þessi nýja stofnun hlaut nafnið UN Women og er tilkoma stofnunarinnar tímamótaviðburður fyrir konur um heim allan.
„Við leituðum til Kitty Von-Sometime og WEIRD GIRLS PROJECT því okkur langaði að halda upp á þessu mikilvægu breytingu á örlítið öðruvísi hátt,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi og bætir við:
„Kitty hefur verið að gera stórkostlega hluti og finnum við mikinn samhljóm með skilaboðum WEIRD GIRLS PROJECT og því sem UN Women stendur fyrir; að veita konum aukinn kraft og að rödd kvenna fái loksins að hljóma hærra en nokkru sinni fyrr.“
Samstarfið heppnaðist vel og ríkti mikið líf í Stúdíó Sýrlandi þar sem yfir 20 skrýtnar stelpur voru komnar saman.
„ Ég og starfskona mín fengum einnig að taka þátt í myndatökunni og þótti okkur það sérstaklega skemmtilegt,“ segir Inga ennfremur.
Umrætt verk var afhjúpað í miðbæ Reykjavíkur 8. mars síðastliðinn á alþjóðlegum baráttudegi kvenna með pompi og pragt. Hér má sjá afrakstur samstarfsins.
Ljósmyndari er Kristinn Magnússon.



