UN Women-umræður: Sögur af mögnuðum konum

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

maryschnackAthafnakonan Mary Schnack mun halda fyrirlestur um fyrirtækið sitt Up from Dust á Café Haíti.

Mary hefur ferðast um gjörvallan heiminn þar á meðal til Rúanda, Gana, Egyptalands, Afganistan, Kambódíu og Indlands með það að markmiði að efla konur í fátækum ríkjum. Meðfram námskeiðunum hefur Mary keypt varning af innlendum konum til þess að selja í heimalandi sínu og víðar og styrkja þannig atvinnusköpun kvenna í þróunarlöndum.

Mary hefur vakið mikla athygli fyrir fyrirtæki sitt sem hún kallar sjálf „ástríðuna“ í lífi sínu. Á UN Women-umræðunum að þessu sinni mun hún segja frá  ferðalögum sínum og öllum þeim merkilegu konum sem hún hefur kynnst í gegnum tíðina.

Jafnframt mun Mary kynna muni sem hún hefur safnað á ferð sinni um heiminn og bjóða viðstöddum að kaupa fallegan varning.

Umræðunar verða haldnar 18. apríl næstkomandi á Café Haíti klukkan 20. Aðgangur er ókeypis.