Fiðrildavika 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

„Þegar konur eru heilbrigðar, menntaðar og njóta frelsis til þess að nýta þau tækifæri sem lífið hefur upp á að bjóða, blómstra samfélög og konur og börn uppskera margfalt.“
-Kofi Annan, fyrrum aðalritari Sameinuðu þjóðanna.


UN Women á Íslandi stendur fyrir fjáröflunarviku 12. – 18. september með það að markmiði að hvetja Íslendinga til að standa með „systrum“ sínum víða um heim.

Þetta er í annað sinn sem UN Women stendur fyrir fjáröflunarátaki en árið 2008 var haldin ógleymanleg Fiðrildavika þar sem að söfnuðust um hundrað milljónir.

Þema fjáröflunarvikunnar í ár verður einnig fiðrildið; Fiðrildaáhrifin vísa í þá kenningu að vængjasláttur örsmárra fiðrilda í einum heimshluta getur haft áhrif á stór veðurkerfi hinum megin á hnettinum.

Markmið Fiðrildavikunnar er að hvetja landsmenn til þess að skrá sig sem styrktaraðila í Systralag UN Women. Með því að vera þátttakandi tekur þú þátt í að uppræta ofbeldi, fátækt og óréttlæti meðal kvenna í fátækustu samfélögum heims.

Með því að vera þátttakandi í Systralagi UN Women, stendur þú með „systrum“ þínum víðsvegar um heim og eflir þær í viðleitni sinni til að skapa sér, börnum sínum og þar með samfélaginu öllu betri framtíð.
Framlög til Systralagsins renna til UN Women sem er eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem berst eingöngu fyrir bættum hag kvenna í fátækustu löndum heims.

Saman getum við haft fiðrildaáhrif!

Styrktu starfið mánaðarlega:

Krafist
Krafist
Krafist
Krafist
Krafist
Krafist
Krafist
Krafist