Fiðrildaáhrif UN Women

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Fiðrildaáhrif UN Women
Fiðrildið hefur tilvísun í alþjóðlega baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og hefur í gegnum aldirnar verið álitið táknmynd fyrir umbreytingar í lífi fólks í átt til frelsis. Fiðrildaáhrifin (e. butterfly effect) vísa í þá kenningu að vængjasláttur örsmárra fiðrilda í einum heimshluta geti haft áhrif á stór veðurkerfi hinum megin á hnettinum.
Það má svo sannarlega heimfæra kenninguna um fiðrildaáhrifin á fjáröflun UN Women á Íslandi. Með því að leggja UN Women lið gefst tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á líf kvenna í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum. Markmið UN Women er að gefa konum byr undir báða vængi. Við erum öll hluti af alþjóðasamfélaginu. Því betri sem aðstæður og kjör okkar eru, því betur erum við í stakk búin til að láta gott af okkur leiða og vera virkir þátttakendur í að bæta hag annarra í heiminum.Fidrildi-Facebook

Saga Mirabal-systranna
Þann 25. nóvember 1960 lét Trujillo, einræðisherra Dóminíska lýðveldisins, myrða á hrottalegan hátt þrjár systur; Minervu, Mate og Patriu Mirabal. Þær börðust fyrir mannréttindum og lýðræði og voru kallaðar fiðrildin. Morðin á systrunum var dropinn  sem fyllti mælinn hjá almenningi því sex mánuðum síðar lauk 32 ára tímabili ógnarstjórnar í landinu þegar Trujillo var ráðinn af dögum. Árið 1981 ákváðu kvennasamtök í Suður Ameríku að gera 25. nóvember að baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi til að heiðra minningu Mirabal-systranna. Kvennasamtök um allan heim hafa upp frá því haldið uppi merkjum fiðrildanna og það var árið 1999 að Sameinuðu þjóðirnar lýstu daginn alþjóðlegan baráttudag gegn kynbundnu ofbeldi.