Fiðrildalagið

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

jussaFiðrildalag UN Women

-Jussanam da Silva leggur UN Women lið

Jussanam da Silva er brasilísk söngkona sem búsett hefur verið á Íslandi síðastliðinn þrjú ár. Hún hefur yljað landsmönnum með brasilískum bossanova-töktum  auk þess er barátta hennar fyrir  framlengdu landvistarleyfi mörgum í fersku minni.

Jussanam hafði betur og við hjá UN Women á Íslandi erum stolt að hafa fengið þessa baráttukonu til liðs við okkur.

Í tilefni af fjáröflunarátaki samtakanna sem ber heitið Fiðrildavika, samdi Jussanam dægurlag.  Lagið heitir „You Can Count On Me Because I´m A Woman“, texti er eftir Jussanam sjálfa og lagið eftir samstarfsfélaga hennar Harald Erici.

Lagið er tileinkað öllum konum sem búa við bág kjör í fátækustu löndum  heims og á stríðshrjáðum svæðum.

Til þess að sem flestir geti notið lagsins, verður hægt að niðurhala því án endurgjalds á heimasíðu UN Women og hlusta á það á Facebook-síðu samtakanna.

UN Women vonar að sem flestir niðurhali laginu og njóti! Þess skal getið að Jussanam og allir sem komu að laginu gáfu vinnu sína.

Count on me (hægri smelltu og veldu vista )