Fiðrildafjör

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

UN Women verður í Kringlunni dagana 15. – 17. september í þeim tilgangi að kynna starfsemi samtakanna fyrir landsmönnum og þau brýnu verkefni sem verið er að vinna í þágu kvenna í fátækustu löndum heims.Photo0583

Einnig verður hægt að næla sér í UN Women-pokana sem slegið hafa í gegn á síðustu vikum. Ekki eru margir pokar eftir og því fer hver að verða síðastur að næla sér í eintak.

Fiðrildaskreytingar sem leikskólabörn í Reykjavík hafa búið til verða til sýnis við básinn og hvetjum við að sjálfsögðu foreldra þessara barna til að mæta í Kringluna og skoða fiðrildi barna sinna.

Kíkið við og sýnið samhug í verki!