Vil byrja á að þakka öllum þeim– og það eru ekki fáir – sem hafa lagt okkur lið undanfarna mánuði til að gera þessa Fiðrildaviku að raunveruleika. Það eru tugir öflugra sjálfboðaliða sem hafa gefið ómælda vinnu og tíma til þess að vekja athygli á þessum málstað. Það er virkilega gefandi að sjá hvað hægt er að framkvæma með elju, gleði og óbilandi krafti – og afskaplega skertu fjármagni!
Þetta er í annað skipti sem að UN Women – sem var áður UNIFEM – hvetur Íslendinga til þess að hrinda af stað fiðrildaáhrifum. Firðrildi er táknmynd vonar, frelsis og umbreytinga – og það er kallað fiðrildaáhrif þegar eitthvað lítið eins og blak fiðrildis getur valdið stórtækum breytingum á veðri hinum megin á hnettinum. Okkur tókst svo sannarlega að standa fyrir stórtækum breytingum þegar Íslendingar tóku höndum saman og söfnuðu yfir 100 milljónum á einni viku fyrir systur sínar í Kongó, Líberíu og Súdan.
UN Women er ný stofnun en hún byggir á traustum grunni UNIFEM. Það var var söguleg stund 1. Janúar 2011 fyrir alla sem hafa barist fyrir jafnréttismálum og sérstaklega réttindum kvenna í þróunarlöndum undanfarna áratugi – þegar það var samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að setja aukinn kraft og fjármagn í alþjóðlega baráttu gegn misrétti gegn konum.
Það er ótrúlegt til þess að hugsa að UNIFEM var stofnað árið 1976 vegna háværrar kröfu grasrótarsamtaka um heim allan að bæta stöðu kvenna í fátækustu löndum heims– og átti sjóðurinn að upphaflega aðeins að starfa í 10 ár – en árið 1985 þótti þó sannað að vandinn væri stærri en svo að hægt væri að ráða niðurlögum hans á 10 árum.
Það er til marks um hversu léttvægt er tekið á því að helmingur mannskyns nýtur ekki sömu tækifæra og réttinda og hinn. En við vitum að það er hægt að breyta þessu og nú í ár 2011 – gáfu ríki heimins loforð um að setja aukinn kraft í baráttuna með stofnun UN Women sem er eina stofnun Sþ sem vinnur eingöngu að málefnum jafnréttis og kvenna. Það er okkar hlutverk að veita þjóðum heimsins aðhald – og sýna stuðning okkar í verki.
Vissulega höfum við séð breytingar til hins betra frá árinu 1976 en við getum ekki horft framhjá þeirri staðreynd að enn í dag búa rúmlega sex hundruð milljónir kvenna og stúlkna við þann óhugnanlega raunveruleika að heimilisofbeldi er ekki refsiverður glæpur og að á hverri mínútu deyr kona við að fæða barn einungis vegna þess að hún hefur ekki aðgang grunnlæknisþjónustu.
Við getum heldur ekki setið aðgerðalaus meðan þrælahald á sér enn stað. Mansal er þriðja umfangsmesta glæpastarfssemi í heimi á eftir verslun með fíkniefni og vopn og konur og börn eru mikill meirihluti fórnarlamba mansals.
Það er einnig áhyggjuefni að stúlkum sé haldið frá grunnskólamenntun en tveir þriðju af þeim sem eru ólæsir í dag eru konur og stúlkur.
Þetta eru aðeins nokkrar staðreyndir og því miður gæti ég haldið áfram í allan dag að telja upp þau umfangsmiklu verkefni sem UN Women er og mun vinna að úrbætum.
Margir spyrja sig af hverju við á Íslandi eigum að vera stuðningsaðilar og baráttufólk fyrir réttindum kvenna sem við þekkjum ekki. En fyrir því eru margar ástæður:
Ein er t.d sú að við erum þátttakendur í alþjóðlegu samfélagi sem er alltaf að verða smærra og tengdara - sem gerir kröfu á okkur um þátttöku. Það er ekki aðeins ábótasamt fyrir konur sem einstaklinga ef þær geta nýtt hæfileika sína – heldur bætir það lífsgæði barna þeirra og fjölskyldu – sem síðan leiðir til bætts hags samfélagsins alls. En það er ekki aðeins siðferðileg skylda okkar að gæta þess að réttindi kvenna séu virt um allan heim – því við verðum aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn – það er hagur okkar allra og framtíðar barna okkar að búa til réttlátt samfélag.
Sem borgarar í alheimsþorpi getum við nú með enn áhrifaríkari tækni og samskiptasíðum tekið þátt. Við sátum öll límd við sjónvarps- og tölvur okkar á Íslandi þegar við horfðum á hugrakkt fólk – á rauntíma - leggja líf sitt í hættu í Egyptalandi, Túnis, Líbíu og nú enn í Sýrlandi – þegar það reis upp gegn ríkisvaldi sínu og krafðist umbóta.
Konur tóku ekki síður þátt í þessum byltingum heldur karlar. Það er skylda okkar og UN Women að veita þessum hugrökku konum og samtökum þeirra styrk til að láta rödd sína heyrast þegar verið er að byggja upp nýtt samfélag – þar sem allir, konur, karl og börn geta lifað frjáls og sem fullgildir borgarar. Þessar uppreisnir urðu að miklum hluta til vegna þess að fólk gat tekið höndum saman með bættri samskiptatækni – Facebook og Twitter.
Við getum líka á einfaldan hátt tekið þátt í þessum sögulegu breytingum – farið á Facebook og heimasíðu UN Women á Íslandi og gengið í Systralagið og styrkt systur okkar um heim allan með mánaðarlegum greiðslum. Það kostar okkur heldur ekki nema 33 kr á dag!
Hvet ykkur öll til þess að fylgjast með Fiðrildavikunni á næstu dögum.
Tökum þátt í að ýta af stað öldu sem mun breytast í flóð breytinga til hins betra fyrir systur okkar og fjölskyldur þeirra um heim allan.



