Kvennaathvörf veita þolendum ofbeldis mikilvægan stuðning á Haítí

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

„Viltu fara með mér á lögreglustöðina á morgun eins og þú fórst með stelpunni í dag?“

Þetta eru orð hinnar 13 ára gömlu Johanne þegar hún grátbað Monique, ráðgjafa við kvennaathvarfið Shelter Myriam Merlet í borginni Cape Haitian á Haítí um aðstoð. Johanne hafði verið send heim af lögreglunni eftir að hafa kært nauðgun sem hún hafði orðið fyrir daginn áður.

Monique og Johanne höfðu hist á lögreglustöðinni fyrr um daginn. Monique var þar ásamt Nadju,15 ára munaðarleysingja, sem var ólétt eftir síendurteknar nauðganir manns sem bjó á heimili þar sem henni hafði nýlega verið komið fyrir.

Lesa áfram

Frjálsar og án óttar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Vissir þú að konur á aldrinum 15-44 ára eru líklegri til að verða fyrir nauðgun og heimilisofbeldi en að fá krabbamein, malaríu eða lenda í umferðarslysi samanlagt. Vissir þú að um allan heim fá konur lægri laun en karlar? Vissir þú að 70% þeirra sem búa við sárafátækt eru konur? Samt bera þær nánast alltaf ábyrgðina á því að gefa börnum sínum að borða.

Lesa áfram

Haga hetjur sér karlmannlega?

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Stórhuga baráttufólk fagnaði á ráðstefnu í Mexikó árið 1975. Ástæðan var sú að leiðtogar heimsins féllust á kröfur þeirra um að vinna markvisst að því að auka jafnrétti kynjanna. Til þess að sýna viljann í verki var sett sérstofnun innan Sameinuðu þjóðanna; UNIFEM, sem átti að vinna að þessu markmiði. Þau voru stórhuga og bjartsýn. UNIFEM voru gefin tíu ár til þess að eyða kynbundum mismunum. Árið 1985 var markmiðinu þó ekki náð.

Lesa áfram

16 skref til þess að enda ofbeldi gegn konum

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi, greindi Michelle Bachelet aðal framkvæmdastýra UN Women frá ítarlegri stefnu til útrýmingar á kynbundnu ofbeldi á heimsvísu. Leiðtogar heimsins eru hvattir til að sameinast um þetta málefni og tryggja konum líf án ofbeldis. Stefnan er í 16 liðum og í henni felst að:
Lesa áfram

17 milljónir dala í Styrktarsjóðinn

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Í lok september tilkynnti Styrktarsjóður UN Women til afnáms ofbeldis gegn konum um 17,1 milljón dala styrkveitingu til 22 verkefna í 34 löndum, þar á meðal í Írak og S-Súdan en þarlend verkefni hljóta slíka styrki í fyrsta sinn.

Lesa áfram