Framlag Íslendinga til UN Women eykst um 140%

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

mynd
UN Women, stofnun Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna og jafnréttis fagnar nú eins árs afmæli. Fyrir ári sameinaðist UNFEM þremur systurstofnunum innan SÞ og til varð UN Women. Það var sögulegur áfangi er aðildarríkin samþykktu að leggja meira fé í jafnréttismál og tryggja konum í fátækustu löndum heims líf án ofbeldis og mismununar.

Íslensk landsnefnd UN Women gleðst sérstaklega á ársafmæli samtakanna því landsmenn sýndu stuðning sinn í verki við jafnréttismál á alþjóðavísu og jókst framlag til UN Women (áður UNIFEM) um 140 prósent á árinu.

„Við erum alveg orðlaus yfir þessu frábæru viðtökum. Nú eru yfir 2400 Íslendingar sem styrkja starf UN Women mánaðarlega og taka þannig þátt í að styrkja konur og fjölskyldur þeirra í fátækustu löndum heims,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. „Þessi gríðarlegi stuðningur Íslendinga við jafnréttismál og valdeflingu fátækra kvenna hefur vakið heimsathygli og er framlag íslensku landsnefndarinnar næsthæst í heiminum á eftir heimsálfunni Ástralíu! Við erum óendanlega þakklát.“

Árangur Íslendinga í jafnréttismálum í samanburði við önnur lönd hefur verið mikið í fréttum undanfarið. Þó vitum við öll að enn er langt í land. Því gleðst landsnefndin yfir því að landsmenn líti út fyrir Íslandsstrendur og styðji við bak systra sinnar í fátækustu löndum heims svo þær fái einnig að njóta allra þeirra tækifæra sem lífið hefur upp á að bjóða.