
Systralag UN Women var ýtt úr vör fyrir tæpum þremur árum. Starfsemi UN Women byggir að mestu á frjálsum framlögum og því er Systralagið helsta fjáröflunarleið samtakanna hér á landi. Í dag eru rúmlega 2400 manns sem styrkja starf UN Women mánaðarlega.
Styrktaraðilar Systralagsins eru á öllum aldri og úr öllum hornum samfélagsins. Í ár viljum við kynnast styrktaraðilum okkar nánar og um leið skapa umræðu um jafnrétti kynjanna.
Nafn? Hanna Björg Vilhjálmsdóttir
Starf? Kennari
Aldur? 48
Hvenær gekkstu í Systralagið? Þegar það byrjaði - 2009
Af hverju að styrkja konur? Af því að ég er femínisti – og þar með er það að styrkja konur og málefni kvenna mínar ær og kýr. Konur í fátækustu ríkjum heims eru beittar ólýsanlegu misrétti á öllum sviðum samfélagsins og það er skylda okkar í norðrinu að gera okkar til að hjálpa – þó ekki sé nema af því að við getum það.
Hvað þýðir jafnrétti fyrir þér? Upphafið og endirinn á öllu – allstaðar. Forsenda hamingju og farsældar einstaklinga og samfélaga. Jafnrétti er það allra mikilvægasta í öllum heiminum – fyrir alla – konur og kalla. Góðir hlutir gerast hratt – jafnrétti strax!
Vilt þú vera systir mánaðarins? Sendu okkur póst á unwomen@unwomen.is



