Í þessum mánuði, þegar UN Women fagnar fyrsta starfsafmæli sínu hafa 114 ríkisstjórnir lagt framlög í kjarnastarfsemi samtakanna fyrir árið 2011og þar með eru orðnar 73% hærri en samanlögð fjárráð allra fjögurra fyrirrennara stofnunarinnar á árinu áður. Markmið stofnunarinnar er að tekjur á árunum2012 – 13 verði 700 milljónir bandaríkjadala.
,,Fjárhagsáætlunin ýtir á okkur að styrkja allt okkar samstarf – við stjórnvöld, frjáls félagasamtök og einkageirann, á sama tíma og við leitumst við að gera meira með minna,” sagði Michelle Bachelet, framkvæmdarstýra UN Women á síðasta stjórnarfundi í desember. ,,Engu að síður höfum við ástæðu til að vera bjartsýn á öruggara fjármagnsflæði, enda eru fjárhagsleg úrræði okkar í dag meiri en samanlögð fjárráð hinna fjögurra stofnana sem runnu saman. “
Þar sem minna en tvö prósent af fjármagni UN Women kemur úr sjóði Sameinuðu þjóðanna eru samtökin mjög háð frjálsum framlögum. Þrátt fyrir að Spánn og Bretland leggi enn mest fram hafa nokkrir styrkveitendur – þar á meðal Ástralía, Kanada, Danmörk, Finnland, Indland, Holland, Noregur, Suður-Kórea, Svíþjóð, Sviss og Sameinuðu Arabísku Furstadæmin – samþykkt gríðarlega aukningu á fjárveitingum til UN Women.
UN Women er að vinna að styrkingu samstarfs síns við einkageirann og frjáls félagasamtök. Til dæmis hefur UN Women hafið sína fyrstu framtaksfjármögnun í formi ráðgjafar, ásamt Kraft Foods, í gegnum svæðisskrifstofuna í Jórdaníu.
Viðræður eru hafnar við tæknifyrirtæki um að kanna nýstárlegar leiðir til að styrkja konur, sérstaklega í dreifbýli. Tvöhundruð og fimmtíu fyrirtæki hafa einnig skrifað undir Jafnréttissáttmála UN Women og þannig skuldbundið sig til að innleiða ráðstafanir sem efla konur. Þessar sjö meginreglur voru þróaðar fyrir rúmu ári af UN Women og UN Global Compact og eiga að hjálpa fyrirtækjum sem vilja endurskoða núverandi stefnu og starfsemi – eða setja á fót nýja – með það að markmiði að gera valdeflingu kvenna að raunveruleika.



