UN Women á Íslandi eru frjáls félagasamtök
en grasrót samtakanna myndar sterkan starfsgrundvöll og mikilvægan stuðning við starfið. UN Women á Íslandi styður og styrkir starfsemi Sameinuðu þjóðanna í baráttunni fyrir jafnrétti og bættri stöðu kvenna víða um heim, sérstaklega á sviði þróunarsamvinnu.
Félagar UN Women á Íslandi fá reglulega sendar fréttir af starfi UN Women víða um heim og hér heima. Einnig fá þeir sendar upplýsingar um ýmsa viðburði.
Félagsgjöld renna til reksturs skrifstofu félagsins og verkefna innanlands sem miða að fjáröflun til verkefna erlendis og vitundarvakningar meðal Íslendinga.
Almennir félagar
Almenn félagsgjöld UN Women eru 4.500 kr. á ári.
Styrktarfélagar
Fyrir 5.000 kr. á ári er hægt að gerast styrktarfélagi UN Women á Íslandi.
Velunnarar
Fyrir 10.000 kr. á ári er hægt að gerast velunnari UN Women á Íslandi
Félagsgjöld eru innheimt með gíróseðli
Við viljum benda áhugasömum á að einnig er hægt að gerast styrktaraðili UN Women með því að skrá sig í Systralagið. Fjármagn sem safnast í gegnum Systralagið rennur til verkefna sem stuðla að auknu jafnrétti kvenna í fátækustu löndum heims. Nánari upplýsingar um Systralagið má finna hér:
http://unwomen.is/index.php/styrktu-starfie



