Hvað er UN Women?

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

UN Women (United Nations Entity for Gender Equality and the Empowerment of Women) er eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem vinnur eingöngu í þágu kvenna og jafnréttis í þróunarlöndum og stríðsátakasvæðum.

UN Women hét áður UNIFEM, en í janúar 2011 sameinaðist UNIFEM þremur systurstofnunum sínum innan Sþ og hlaut nafnið UN Women.

UN Women fer með umboð SÞ til að vinna að jafnrétti kynjanna og stuðla að því að stefnumótun í þróunarstarfi taki mið af jafnréttissjónarmiðum og réttindum kvenna í samræmi við alþjóðleg markmið.

UN Women veitir tæknilegan og fjárhagslegan stuðning til verkefna sem ætlað er að efla réttindi kvenna, þátttöku þeirra í stjórnmálum og efnahagslegt sjálfstæði.

 

Hlutverk UN Women er að:

  • Styðja frumkvæði og nýjungar í aðferðum til að bæta stöðu kvenna í samræmi við landsstefnur og alþjóðleg markmið.

  • Stuðla að aðkomu og þátttöku kvenna í þróunarsamvinnu.

  • Vera brautryðjandi á sviði kynjajafnréttis í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Sþ.


Starfi UN Women má skipta í sjö málaflokka

  • 1. Tryggja að mannréttindi kvenna séu virt
  • 2.Draga úr fátækt kvenna í samræmi við þúsaldarmarkmiðin
  • 3. Draga úr ofbeldi gegn konum
  • 4. Auka kynjaréttlæti í lýðræðislegri uppbyggingu ríkja á friðar- sem og ófriðartímum
  • 5. Efnahagslega valdefling kvenna
  • 6. Auka þátttöku kvenna í atvinnulífinu og stjórnmálumn
  • 7. Stefnumótun og kynjuð fjárlagagerð

Starfsemi UN Women er eingöngu byggð á frjálsum fjárframlögum aðildarríkja Sþ og frá frjálsum félagasamtökum . Hæstu framlögin koma frá aðildaríkjum Sþ en auk þeirra rennur það fjármagn sem landsnefndir UN Women afla til stofnunarinnar.

Aðalstöðvar UN Women eru í New York en starfsfólk, sjálfboðaliðar og velunnarar starfa um allan heim. Þá annast svæðisskrifstofur skipulagningu og eftirlit með verkefnum í þeim löndum sem þiggja aðstoð UN Women. Tólf verkefnastjórar í öllum heimsálfum vinna sem tengiliðir á milli þeirra sem þiggja aðstoðina og skrifstofu UN Women og fylgjast með að fjármunum sé vel varið. Verkefni UN Women eru unnin í samræmi við svæðisbundinn veruleika í Afríku, Asíu og Kyrrahafinu, Suður Ameríku og Karíbaeyjum, Mið- og Austur Evrópu og fyrrverandi Sovétlýðveldum.

Landsnefndir UN Women starfa í 18 löndum að því að vekja athygli almennings á þörfum kvenna í fátækum löndum og starfi UN Women, afla fjár til starfsins og hvetja ríkisstjórnir sínar til að taka þátt í því. UN Women á Íslandi er eitt slíkra samtaka.

 
 
 
 

UN Women

Laugavegi 42, 2. hæð
101 Reykjavík

Sími: 552 6200
Fax: 552 6010
unwomen-at-unwomen.is

Fylgdu okkur

facebook youtube youtube