Styrk og sjálfstæði fylgir ábyrgð

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir verður í fylkingarbrjósti Fiðrildaviku UN Women sem hefst mánudaginn 12. september.

Vikan verður notuð til að safna fé og hvetja fólk til að styðja fjárhagslega við konur sem búa við kröpp kjör, meðal annars í stríðshrjáðum löndum.

Þrátt fyrir miklar annir fann Unnur Ösp sig knúna til að leggja málefninu lið; ekki síst þegar hún stóð frammi fyrir tölulegum staðreyndum um fjölda kvenna sem verða fyrir ofbeldi og nauðgunum.

Unnur Ösp ætlar að nota Fiðrildavikuna til að heimsækja fyrirtæki og kynna starfsemi UN Women með fyrirlestri um samtökin og þau verkefni sem þau vinna í fátækustu löndum heims. Tilgangurinn er að hvetja fyrirtæki og starfsfólk til að legga samtökunum lið með því að borga tiltekna upphæð með „systur“ mánaðarlega.
„Konur hafa það víða mjög slæmt í þróunarlöndunum og á stríðshrjáðum svæðum. Þegar við styrkjum konur erum við að styrkja börnin þeirra og alla fjölskylduna um leið. Það er hræðileg staðreynd að einni af hverjum fimm konum á heimsvísu er nauðgað á lífsleiðinni og þriðja hver kona verður fyrir ofbeldi,“ segir Unnur Ösp. „Ég var nú ekki alveg búin að setja mig inn í þessar tölur og fékk algert sjokk þegar ég fór að kynna mér þetta. Og þess vegna ákvað ég að ganga til liðs við þær í Fiðrildavikunni og reyna að vekja fólk til umhugsunar um þessa hluti.“

Unnur Ösp segir að í Fiðrildavikunni verði söfnunin kynnt vel í fjölmiðlum auk þess sem hún mun sækja fyrirtæki heim, en erindi UN Women hefur nú þegar verið vel tekið. „Við erum búnar að ná alveg frábæru samstarfi við nokkur fyrirtæki sem verða styrkaraðilar UN Women í Fiðrildavikunni og þau fyrirtæki fá sérstaka heimsókn frá okkur og starfsmenn þeirra kynningu. Markmiðið er auðvitað að vekja fólk til umhugsunar um stöðu kvenna í heiminum og hvetja sem flesta til að styrkja samtökin og gerast mánaðarlegir áskrifendur og styrkja „systur“ hvar sem er í heiminum.“

Unnur Ösp bendir á að aðstæður þeirra kvenna sem samtökin leitast við að hjálpa séu gerólíkar öllu sem íslenskar konur þekki og séu fjarri raunveruleika okkar. „Ef ég tala út frá minni reynslu þá hefur maður einhvern veginn aldrei upplifað sig sem einhvers konar fórnarlamb eða í minnihlutahópi. Þótt alltaf megi gott bæta í jafnréttismálum hérlendis þá stendur Ísland fremst allra landa á því sviði samkvæmt úttekt Alþjóða efnahagsráðsins í fyrra og mér finnst viss ábyrgð hvíla á okkur, sterkum og sjálfsöruggum konum á Íslandi, gagnvart kynsystrum okkar úti um allan heim sem eru í allt annarri stöðu.“

Staða kvenna í fjarlægum heimshlutum er Unni Ösp einkar hugleikin um þessar mundir þar sem hún mun leika aðalhlutverkið í Eldhafi í Borgarleikhúsinu í byrjun næsta árs. „Þetta verk tengist þessu nú aldeilis. Þar er sögð ævisaga konu frá Mið-Austurlöndum. Alveg ótrúlega sterk og dramatísk saga. Þetta er ofboðslega spennandi nýtt leikrit sem hefur farið sigurför um heiminn. Þannig að þær hjá UN Women hringdu í mig á alveg hárréttu augnabliki og ég var bara svo ótrúlega innblásin að ég varð að gera þetta þótt minn vettvangur sé yfirleitt leiksviðið og vinnuvikan þessa dagana sé ansi þéttsetin.“