Í kvöld fór fram árleg Ljósaganga UN Women í Reykjavík. Yfirskrift Ljósagöngunnar þetta árið var Heimilisfriður – Heimsfriður.
Listir, friðarsúlan og samhugur einkenndi gönguna í ár líkt og undanfarin ár.
Ljósberarnir sem leiða gönguna í ár eru: Thelma Ásdísardóttir, Óttar Norðfjörð, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, Árni Beinteinn Árnason, Berglind Guðmundsdóttir og Elín Hirst. Öll eiga það sameiginlegt að hafa lagt baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi lið og varpað þannig birtu á þennan skuggalega málaflokk.
Ljósagangan hófst við Þjóðmenningarhúsið á Hverfisgötu og var gengið saman að Sólfarinu við Sæbraut. Við Sólfarið fór rithöfundurinn Bryndís Björgvinsdóttir með hugvekju og kór Háskóla Íslands söng lag fyrir konur heimsins.



