ELLA gestgjafi UN Women

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Jólaglögg UN Women verður haldið á sunnudaginn milli klukkan 16 og 18 og verður gestgjafi Elínrós Líndal, konan á bakvið fata- og fylgihlutalínuna Ella.

Veislan fer fram í húsakynnum verslunar Ellu við Ingólfsstræti. Fyrirtækið mun við þetta tilefni tilkynna um styrk til samtakanna, en þau vinna eingöngu í þágu kvenna og jafnréttis í þróunarlöndum og á stríðsátakasvæðum.

Söngkonan Sóley Stefánsdóttir, úr Sin Fan Bous og Seabear, syngur lög af sólóplötu sinni fyrir gesti sem geta notað tækifærið og átt notalega stund með velunnurum UN Women í miðju jólaatinu.