Jólaglögg UN Women á Íslandi fer fram á eins árs afmæli samtakanna á sunnudag. Glöggið verður haldið í versluninni Ellu á Ingólfsstræti 5 og stendur frá klukkan 16 til 18.
Tónlistarkonan Sóley syngur fyrir gesti lög af hinni margrómuðu plötu sinni We Sink. Ella mun einnig tilkynna styrk sinn til samtakanna, en fyrirtækið gefur 1.000 krónur af hverju seldu ilmvatni í Styrktarsjóð UN Women til afnáms ofbeldis gegn konum. Allir velunnarar samtakanna eru hvattir til að mæta og eiga notalega stund saman í tilefni dagsins.



