1. gr. Um félagið
Heiti félagsins er Landsnefnd UNIFEM á Íslandi (landsnefnd). Landsnefndin starfar samkvæmt landsnefndarsamningi við UNIFEM í þeim eina tilgangi að styðja vinnu og markmið UNIFEM.
Landsnefndin skuldbindur sig til að fylgja stefnu og reglugerðum UNIFEM í starfi sínu, í samræmi við landsnefndarsamninginn. Heimili landsnefndar og varnarþing er að Laugavegi 42, 101 Reykjavík. Starfsár félagsins er almanaksárið frá 1. janúar til 31. desember.
2. gr. Markmið
Markmið landsnefndar er að
* afla fjár til verkefna UNIFEM,
* kynna og auka áhuga landsmanna á starfsemi UNIFEM,
* vera málsvari kvenna í þróunarlöndum með það að leiðarljósi að störf þeirra séu órjúfanlegur hluti efnahags- og félagslegrar framþróunar.
3. gr. Félagar
Einstaklingar, félög og fyrirtæki geta orðið félagar að landsnefndinni. Allir félagar skulu greiða félagsgjöld og skal lágmarksupphæð þeirra ákveðin á aðalfundi ár hvert.
4. gr. Heiðursfélagar
Heimilt er að kjósa heiðursfélaga úr hópi félagsmanna og skal kjör þeirra fara fram á aðalfundi. Stjórn félagsins hefur ein rétt til að bera fram tillögu á aðalfundi um kjör heiðursfélaga og skal hún standa einhuga að þeirri tillögu. Áður en stjórnin kynnir slíka tillögu og kunngerir í fundarboði skal hún tilkynna viðkomandi um það. Má því aðeins flytja tillöguna að tilnefndur heiðursfélagi fallist fyrirfram á að taka kjöri.
5. gr. Verndari
Heimilt er að velja verndara félagins og skal stjórn landsnefndar ákveða það hverju sinni. Verndarinn leggur sitt af mörkum til að auka sýnileika UNIFEM, vekja almenning til vitundar um starfsemi samtakanna og aðstoða UNIFEM við að ná til mikilsmetandi fólks í samfélaginu. Verndarinn tekur þátt í tilteknum viðburðum fyrir hönd UNIFEM, svo sem fjáröflunum, kynningum, ráðstefnum og öðrum tilfallandi viðburðum. Verndari fundar ásamt fulltrúum UNIFEM með stjórnvöldum, fjölmiðlum og öðrum þeim sem þurfa þykir hverju sinni félaginu til framdráttar.
6. gr. Aðalfundur
Aðalfund skal halda fyrir 1. maí ár hvert. Allir félagar landsnefndar eiga rétt á setu á aðalfundi og hefur hver félagsmaður eitt atkvæði. Aðalfundur skal boðaður með skriflegum hætti til félagsmanna með a.m.k. 14 daga fyrirvara. Í fundarboði skal getið dagskrár aðalfundar ásamt tillögum um lagabreytingar skv. 9. gr. ásamt öðrum fram komnum tillögum.
Á aðalfundi skal taka fyrir eftirfarandi mál:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Stjórn landsnefndar skal skýra frá viðfangsefnum félagins og rekstri þess á liðnu starfsári.
3. Rekstrar- og efnahagsreikningar landsnefndar fyrir liðið starfsár skulu kynntir og lagðir fram til samþykktar.
4. Ákvörðun um félagsgjöld fyrir starfsárið.
5. Kjör stjórnar og formanns.
6. Kjör endurskoðanda.
7. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni og tillögur sem löglega eru upp bornar.
Framboði til formanns og stjórnar skal skila til skrifstofu landsnefndar fyrir kl. 12 þremur virkum dögum fyrir aðalfund.
Allir félagar sem greitt hafa félagsgjöld fyrir liðið starfsár tveimur vikum fyrir aðalfund hafa kosningarétt á aðalfundi. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum. Nú verða atkvæði jöfn og ræður þá hlutkesti úrslitum.
Fundargerð aðalfundar skal liggja frammi á skrifstofu félagsins til kynningar fyrir félagsmenn eigi síðar en 10 dögum frá aðalfundardegi. Aðalfundargerðir skulu varðveittar með tryggilegum hætti.
7. gr. Stjórn
Stjórn er skipuð 9 stjórnarmönnum og 2 varamönnum og er stjórn kosin til eins árs í senn. Formaður er kosinn í sérstakri kosningu á aðalfundi. Stjórn skal á fyrsta fundi sínum skipa varaformann og gjaldkera.
Stjórn hefur umboð til að ráða framkvæmdastýru. Aðrir starfsmenn, s.s. verkefnisstjórar, ráðgjafar o.þ.h., skulu ráðnir af stjórn eftir þörfum.
Stjórnin fer með málefni félagsins milli aðalfunda, gerir starfsáætlun, veitir prókúru fyrir félagið og skipar í starfsnefndir.
Stjórnarfundur er lögmætur ef 5 stjórnarmenn eru mættir. Á stjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum. Séu atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns.
Stjórn fundar að jafnaði 9 sinnum á ári. Halda skal stjórnarfund krefjist einhver stjórnarmanna þess. Framkvæmdastýra landsnefndar er ritari stjórnar og situr alla fundi. Aðrir skulu sitja fundi stjórnar eftir þörfum.
8. gr. Framkvæmdaráð
Í framkvæmdaráði sitja formaður, varaformaður og gjaldkeri. Framkvæmdaráð starfar í umboði stjórnar og fer með málefni hennar milli stjórnarfunda. Framkvæmdaráð hefur umsjón með starfi og rekstri landsnefndar og er framkvæmdastýru til fulltingis hvað varðar útfærslu og framkvæmd á verkefnum og viðfangsefnum sem ákveðin eru á stjórnarfundum. Varaformaður ber ábyrgð á ritun fundargerða framkvæmdaráðs.
Framkvæmdaráð getur með samþykki stjórnar gert tímabundna starfssamninga við ýmsa aðila um tiltekin viðfangsefni vegna starfsemi landsnefndar.
Komi upp ágreiningur innan framkvæmdaráðs skal bera hann undir stjórn svo fljótt sem auðið er.
9. gr. Framkvæmdastýra
Framkvæmdastýra er skipuð af stjórn og starfar samkvæmt þeirri stefnu sem stjórn hefur ákveðið, í umboði og á ábyrgð hennar. Framkvæmdastýra annast meðal annars daglegan rekstur og starfsemi landsnefndar og heldur félagatal. Framkvæmdastýru ber að veita stjórn og endurskoðanda allar upplýsingar um rekstur félagsins sem þeir kunna að óska og veita ber.
10. gr. Fjárhagur
Landsnefnd skal starfa samkvæmt fjárhagsáætlun sem samþykkt er af stjórn.
Landsnefndin er fjármögnuð með styrkjum og fjárframlögum frá einstaklingum, lögaðilum og með árgjöldum félaga.
Reikningsár landsnefndar er almanaksárið. Reikningar félagsins skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda. Endurskoðandi skal kosinn á aðalfundi. Framkvæmdastýra sendir ársreikning, samþykktan af stjórn, til endurskoðanda eigi síðar en einum mánuði fyrir boðaðan aðalfund. Senda skal endurskoðaða ársreikninga til höfuðstöðva UNIFEM í New York.
11. gr. Lagabreytingar
Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi. Lagabreyting telst samþykkt ef samþykki a.m.k. 2/3 hluta atkvæða á aðalfundi.
Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn a.m.k. 4 vikum fyrir aðalfund. Tillögur til lagabreytinga skulu sendar félagsmönnum með aðalfundarboði.
12. gr. Ákvörðun um félagsslit
Ákvörðun um félagsslit landsnefndar skal tekin á aðalfundi. Slík ákvörðun verður því aðeins gild að hún hljóti samþykki minnst 2/3 hluta atkvæða aðalfundar.
Verði landsnefnd slitið skjal stjórn gera upp skuldir og eignir og slíta rekstri hennar að því loknu. Skulu eftirstandandi eignir renna til höfuðstöðva UNIFEM í New York.



