Utanríkisráðuneytið
Landsnefnd UN Women á Íslandi á í góðu samstarfi við utanríkisráðuneytið. Ráðuneytið endurnýjaði samstarfssamning til næstu þriggja ára við UN Women árið 2010. Þessi styrkur ráðuneytisins er félaginu ómetanlegur og gerir UN Women kleift að hafa starfsmann í vinnu. Samkvæmt samstarfssamningnum hefur UN Women umsjón með fræðslu um kynjamál fyrir friðargæsluliða sem fara til starfa erlendis fyrir hönd Íslands. Framkvæmdastýra og starfsmenn ráðuneytisins halda reglulega samráðsfundi.
Framlög utanríkisráðuneytisins til UN Women
Á árinu 2010 námu samanlögð framlög utanríkisráðneytinu rúmlega 120 milljónum króna að meðtöldu framlagi til landsnefndarinnar. Auk fjárframlaga til UNIFEM (nú UN Women) voru íslenskir sérfræðingar kostaðir til starfa hjá UNIFEM á Balkanskaga í gegnum Íslensku friðargæsluna og nam sá stuðningur tæpum 28 milljónum króna á árinu. Stuðningur íslenskra stjórnvalda felst í almennum framlögum til stofnunarinnar, framlögum í Styrktarsjóð til afnáms ofbeldis gegn konum, stuðningi við starfsemi UNIFEM í Palestínu, Afganistan og á Balkanskaga.
Landsnefnd UN Women fagnar því að ekki hefur dregið úr framlögum utanríkisráðsins til UN Women 2011.



